Úthlutun ferða- og markaðsstyrkja í febrúar 2024
Í frétt um Starfsemi Útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar 2024 sem birtist í janúar kom fram að úthlutanir ferða- og markaðsstyrkja yrðu með óbreyttu sniði fram yfir úthlutun í apríl. Í maí verða útflutningsstyrkir veittir úr nýjum Tónlistarsjóði og verður umsóknarfrestur og skilyrði auglýst nánar í apríl.
Enn er hægt að sækja um ferðastyrki með óbreyttu sniði í mars og apríl, og skulu umsóknir að venju berast FYRIR 1. mars og 1. apríl. Fyrirspurnir skal senda á styrkir@icelandmusic.is. Janúar og febrúar úthlutanir sjóðsins hafa nú farið fram.
Veittir ferðastyrkir:
Í janúar voru umsóknir um ferðastyrki alls 4 talsins að heildarupphæð kr. 1.150.000.
Veittar voru alls kr 600.000 í styrki sem skiptast á tvö verkefni:
- ADHD
- LÓN
Í febrúar voru umsóknir um ferðastyrki alls 13 talsins að heildarupphæð kr 3.925.000 kr.
Veittar voru alls kr 2.125.000 í ferðastyrki sem skiptast á eftirfarandi verkefni:
- Árný Margrét
- Ingi Bjarni Skúlason
- MC MYASNOI
- MSEA
- Myrkvi
- Skálmöld
- Svavar Knútur
Veittir markaðsstyrkir:
Umsóknir um markaðsstyrki voru 16 talsins að heildarupphæð 13.500.000 kr.
Veittar voru alls kr 3.250.000 í markaðsstyrki sem skiptast á eftirfarandi verkefni:
- Davidsson
- Paddan
- Sunna Margrét
- Svavar Knútur
- Sævar Helgi Jóhannsson
Við óskum þeim öllum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim á komandi mánuðum.