STATUS: Ný skýrsla um stöðu samtíma- og klassískrar tónlistar á Norðurlöndunum

11
.  
June
 
2025

Síðan 2021 hafa samtökin STATUS unnið að því að efla samskipti og þekkingarmiðlun milli Norðurlandanna á sviði samtíma- og klassískrar tónlistar.

Samtökin voru stofnuð af Art Music Denmark en samanstanda núna af Norðurlöndunum: Íslandi (Tónlistarmiðstöðin), Finnlandi (Music Finland), Svíþjóð (Unga tankar om musik and Musikcentrum Syd), Noregi (Music Norway), Færeyjum (Tutl), og Grænlandi (Kommuneqarfik Sermersooq).

Í dag gáfu samtökin út stafræna skýrslu sem ber nafnið „STATUS – Signals From The Nordic Contemporary Music Scenes“ og deilir innsýn inn í heim samtíma- og klassískrar tónlistar á Norðurlöndunum árin 2023 - 2025.

Skýrslan varpar ljósi á frumkvæði, verkefni og mynstur sem hafa vakið athygli STATUS-meðlima og þykir skipta máli fyrir áframhaldandi þróun senanna.

Þú getur lesið skýrsluna hér >>


Markmið STATUS er að styrkja tengsl og miðlun þekkingar milli Norðurlandanna. Ef þú starfar hjá norrænum tónlistarsamtökum á sviði samtíma- og klassískrar tónlistar, þá er þér velkomið að hafa samband: admin@nordicstatus.org

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu STATUS, hér >>

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar