Snorri Ástráðsson og Agnes Hlynsdóttir hljóta “TOP 20 UNDER 30 - Nordic Music Biz” viðurkenninguna 2025

25
.  
June
 
2025

NOMEX-samtökin hafa tilkynnt handhafa Top 20 Under 30 - Nordic Music Biz viðurkenninganna árið 2025. Í ár hljóta Íslendingarnir Snorri Ástráðsson og Agnes Hlynsdóttir þessa virtu viðurkenningu og munu þau taka við henni við hátíðlega athöfn á tónlistarhátíðinni By:Larm í Ósló í september.

Verðlaunin eru veitt af NOMEX (Nordic Music Export), samstarfsvettvangi tónlistarútflutningsskrifstofa Norðurlandanna. Á hverju ári eru 20 einstaklingar undir þrítugu heiðraðir fyrir framúrskarandi störf í tónlistargeiranum á Norðurlöndunum. Markmið NOMEX er að efla samvinnu innan norræna tónlistariðnaðarins, en samanlagt mynda Norðurlöndin sjötta stærsta tónlistarmarkað heims. Top 20 Under 30 verðlaunin eru hluti af því markmiði og varpa ljósi á mikilvægt starf ungs fagfólks á svæðinu og styður það í alþjóðlegri tengslamyndun.

Íslensku dómnefndina skipuðu þau Gabríel Ólafsson, stofnandi Reykjavík Recording Orchestra, Klaudia Gawryluk, stofnandi Radar og plötusnúður, og Ægir Sindri Bjarnason, tónlistarmaður, útgefandi og tónleikahaldari. Öll hafa þau áður hlotið sömu viðurkenningu.

María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar segir Top 20 under 30 verðlaunin gegna mikilvægu hlutverki í því að styðja ungt fólk í tónlistargeiranum og hvetja til áframhaldandi faglegra starfa: 

Það skiptir máli, bæði fyrir íslenskt og norrænt tónlistarlíf heilt yfir, að við viðurkennum og sýnum störfum fagfólksins sem vinnur með og fyrir tónlistarfólkið okkar verðskuldaða athygli. Þau eru órjúfanlegur hluti af framþróun lifandi og blómlegs tónlistarumhverfis“ segir María Rut. 

Snorri Ástráðsson

Snorri hóf störf í íslenska tónlistargeiranum aðeins 15 ára gamall. Fyrst um sinn sem tengiliður við listafólk á hátíðum á borð við Iceland Airwaves en hann sótti fljótt í sig veðrið og er í dag umboðsmaður margra af stærstu röppurum Íslands, þar á meðal Daniil, Flona, Izleif og Young Nazareth. Auk þess rekur Snorri viðburðafyrirtækið Garcia Events og stýrði um árabil tónlistarhátíðinni Hip Hop Hátíðin. Sem viðburðahaldari hefur Snorri flutt listafólk á borð við Skepta, Yung Lean og Sammy Virji til landsins.

Árið 2024 lauk Snorri námi í umboðsmennsku frá The Rhythmic Music Conservatory í Kaupmannahöfn og gekk í kjölfarið til liðs við All Things Live í Danmörku.

Snorri hefur áður hlotið viðurkenningar fyrir framlag sitt en í fyrra rataði hann á 20 under 30 - New Bosses lista IQ Magazine. Nú stefnir hann á áframhaldandi árangur í Danmörku og byrjar með látum.

Agnes Hlynsdóttir

Agnes hefur sett sitt mark á tónlistar- og menningarlíf Reykjavíkur undanfarin ár. Hún var rekstrar- og viðburðastjóri Lemmy og Iðnó og lagði þá sérstaka áherslu á að gera staðina aðgengilegri fyrir fjölbreytta tónleika og listviðburði.

Agnes stofnaði tónleikaröðina Upptakarinn, sem veitir ungu upprennandi listafólki vettvang til að koma fram, auk þess sem að hún hefur skipulagt tónlistarsmiðjur fyrir börn og tekið virkan þátt í kynningu ýmissa íslenskra tónlistarhátíða.

Meðal fyrri íslenskra verðlaunahafa

Júnía Lín - listrænn stjórnandi Laufeyjar
Unnsteinn Manúel Stefánsson - tónlistarmaður og frumkvöðull
Árni H. Kristmundsson - umboðsmaður Daða Freys
Sindri Ástmarsson - bókari Iceland Airwaves
Soffía Kristín Jónsdóttir - stofnandi Iceland Sync

Aðrir verðlaunahafar 2025

Danmörk
• Daniel Bruhn - All we Need, Playback, Mother Tongue Records
• Esben Aarup - UMTO, Live Incubator
• Molly Mercedes Marlow - VEGA
• Susi Castelo - ALICE Cph
• Yasemin Özcelik - MM Management

Svíþjóð
• Waldemar Nordström - WN Entertainment & Boshi Collective
• Naomi Wood - Wood Music & Playground
• Hilma Kekkonen Orrell - Sensus Music
• André Wessely - 777 Sound 2025

Noregur
• Mats P. Austgulen - Ugreit AS
• Agnes Steen Eckersberg - All Things Live
• Sajje Solbakk - Riddu Riđđu
• Tatijana Todorovic - The Orchard Nordics
• Jericson Joseph - Popular Demand

Finnland
• Henri Hagnäs - United Stage Finland
• Livari Suosalo - Warner Music Finland
• Sarah Latosaari - Universal Music Finland

Færeyjar
• Dania O. Tausen - Plátufelagið Tutl



Dómnefndir 

Noregur
• Stephanie Owusu - Sony Music Norway
• Dennis Kiil - Kiil Management
• Stian Nicolaisen - The Orchard

Svíþjóð
• Holly Astera - The Very Good
• Ankit Desai - Snafu Records
• My Bergman - Jubel

Finnland
• Stella Kylä-Liuhala - Ohlogy
• Leevi Mäkinen - PME
• Miika Blomqvist

Danmörk
• Rosa Lois Balle Yahiya - Another Life
• Søren Falk Madsen - Playground Denmark
• Stine Omega - Copenhell

Færeyjar
• Gunn Hernes
• Marianna Nagata - Tónlistarútgáfan Tutl

Ísland
• Gabríel Ólafsson - Reykjavík Recording Orchestra
• Klaudia Gawryluk - stofnandi Radar og plötusnúður
• Ægir Sindri Bjarnason - tónlistarmaður, útgefandi og tónleikahaldari

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar