6 framúrskarandi plötur hljóta Kraumsverðlaunin 2024
Mynd: Brynjar Snær
Amor Vincit Omnia, Iðunn Einars, sideproject, Sigrún, Sunna Margrét og Supersport! hljóta Kraumsverðlaunin í ár fyrir plötur sínar er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Kraumsverðlaunin eru árleg plötuverðlaun fyrst veitt árið 2008 en þetta er í sautjánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Verðlaunin eru ætluð til þess að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa nú rúmlega níutíu listamenn og hljómsveitir hlotið Kraumsverðlaunin fyrir plötur sínar, flest snemma á ferlinum.
Kraumsverðlaunin 2024 hljóta
- Amor Vincit Omnia fyrir brb babe
- Iðunn Einars fyrir Í hennar heimi
- sideproject fyrir sourcepond
- SiGRÚN fyrir Monster Milk
- Sunna Margrét fyrir Finger on Tongue
- Supersport! fyrir Allt sem hefur gerst
Tilnefningar til Kraumsverðlaunanna 2024 (Kraumslistinn):
- Amor Vincit Omnia - brb babe
- Björg Brjánsdóttir og Bára Gísladóttir - Growl Power
- Iðunn Einars - Í hennar heim
- Jónbjörn - Gárur
- Kaktus Einarsson - Lobster Coda
- Katla Yamagata - Postulín
- Kött Grá Pje & Fonetik Simbol - Dulræn Atferlismeðferð
- MC MYASNOI - slugs are legal now
- Múr - Múr
- Saint Pete - Græni pakkinn
- sideproject - sourcepond
- SiGRÚN - Monster Milk
- Sigtryggur Berg og Glupsk - Beyond Happy
- Skorri - randyrtsport
- Sunna Margrét - Finger on Tongue
- Supersport! - allt sem hefur gerst
- Tonik Ensemble - Music Is Mass
- Torfi Tómasson - Eitt
- Xiupill - Mythology
- Young Nazareth – 200 – 101 vol. 1
Við óskum Kraumsverðlaunahöfunum innilega til hamingju!