Annar þáttur hlaðvarpsins Northern Rising er kominn út - að þessu sinni með Elínu Hall

4
.  
June
 
2025

Annar þáttur hlaðvarpsseríunnar Northern Rising hefur litið dagsins ljós. Þáttaröðin, sem var tekin upp í Iceland Airwaves vikunni í fyrra, fylgir listafólki í gegnum hátíðina og veitir einstaka innsýn í litrík ævintýri þess.

Þáttaröðin er í umsjón Tim Pogo, bandarísks fjölmiðlamanns með langa reynslu úr útvarpi, sjónvarpi og stafrænum miðlum. Tim hefur verið fastagestur á hátíðinni síðan árið 2000 og hefur hann fjallað um hana fyrir margvíslega miðla. 

Ástsæla söngvaskáldið og stórleikkonan Elín Hall hefur verið á miklu flugi frá því að plata hennar Heyrist í mér kom út árið 2023. Platan hlaut handfylli af tilnefningum til Íslensku tónlistarverðlaunanna, vann plötu ársins á Reykjavík Grapevine Music Awards og innihélt 3 lög sem náðu toppsæti vinsældalista Rásar 2. 

Samhliða tónlistarferlinum hefur Elín látið mikið til sín taka á hvíta tjaldinu. Í fyrra hlaut hún viðurkenninguna besta leikkona í aðalhlutverki á Chicago International Film Festival fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Ljósbrot auk þess að vera valin í European Film Promotion’s Shooting Stars hópinn árið 2025. 

Elín snýr sér nú aftur að tónlistinni en þann 12. júní kemur út fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu hennar. Lagið, sem heitir Heaven to a heathen var unnið með Grammy verðlaunahafanum Martin Terefe og tóku þau það upp í Eastcote Studios í London. 

Þrátt fyrir brjálæðislegar annir er ró yfir Elíni í þættinum . Hún ræðir hlutverk sitt í sjónvarpsseríunni Vigdísi, spilar nokkur lög fyrir íbúana á Grundi og spjallar um daginn og veginn við alþýðuhetjurnar í Kjötborg. Eins kósí og það gerist.

Northern Rising er framleitt af Tónlistarmiðstöð, Record in Iceland og The Reykjavík Grapevine í samstarfi við Tim Pogo.

Hlaðvarpið má finna á öllum helstu veitum og þar á meðal hér:

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar