Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og Tónlistarmiðstöð undirrita samstarfssamning um varðveislu íslenskra tónverka.

20
.  
December
 
2024

Samstarfssamningur Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Tónlistarmiðstöðvar markar mikilvægan áfanga í varðveislu íslenskrar tónlistar. Með undirritun þessa samnings eru nú formfest þau skref sem áður hafa verið tekin í átt að því að tryggja langtímavarðveislu frumgagna Tónlistarmiðstöðvar, en Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn hefur varðveitt þau síðan 2009.

Markmið samstarfssamningsins er þríþætt:

  • Koma skal í réttan farveg skylduskilum til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns á útgefnu efni tónskálda, sem Tónlistarmiðstöð hefur milligöngu um að merkja með ISMN-númerum, og ákveða með hvaða hætti aðgengi að því efni skuli háttað.
  • Tryggja skal áframhaldandi varðveislu á tónlistarhandritum Tónlistarmiðstöðvar - frumgögnum - í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni.
  • Afhenda Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni til varðveislu tónlistarhandrit sem eru í vörslu Tónlistar­mið­stöðvar og úr höfundarétti. 

Mikilvægi samstarfsins:

Þessi samningur leggur grunn að varðveislu íslenskra tónverka. Hann tryggir ekki aðeins að þessi verk glatist ekki heldur einnig að þau verði aðgengileg til rannsókna í framtíðinni. Með þessu er verið að styrkja hlutverk bæði Landsbókasafns og Tónlistarmiðstöðvar sem lykilstofnana í varðveislu og miðlun íslenskrar menningar.

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar