CYBER taka yfir Love Letter lagalistann

30
.  
May
 
2025

Iðnaðarpopprisarnir í CYBER fóru nýverið með Tónlistarmiðstöð á The Great Escape, þar sem hljómsveitin spilaði tvenna tónleika á þessari goðsagnakenndu hátíð. Íslensk tónlist var fyrirferðamikil í Brighton, en Tónlistarmiðstöð, sem er samstarfsaðili hátíðarinnar, leiddi glæsilega sendinefnd út. Ásamt okkur og CYBER voru skössrokkararnir í Spacestation og íslensku útgáfufyrirtækin Marvaða og Alda með í för. Samhliða fernum tónleikum tók hópurinn þátt í NOMEX-móttöku ásamt fjölda annarra viðburða út um alla borg.

Í tilefni ferðarinnar taka CYBER nú yfir Love Letter-lagalistann okkar og færa okkur ástarbréf til íslenskrar raftónlistar.

Hvort sem þig dagdreymir um ólögleg reiv í mygluðum vöruskemmum út á Granda eða ert bara í leit að góðri helgurupphitun á föstudagseftirmiðdegi, þá svara CYBER kallinu.

Eigið yndislega helgi og áfram íslensk tónlist!

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar