Íslensk tónlist í brennidepli í Japan – sjáðu myndirnar!

16
.  
June
 
2025

Tónlistarmiðstöð fór nýverið til Japans ásamt Íslandsstofu, forseta Íslands Höllu Tómasdóttur og þremur tónlistarmönnum: Gabríel Ólafssyni, Ásgeiri og JFDR, til að kynna íslenska tónlist og menningu.

Ísland fagnaði þjóðardeginum á heimssýningunni í Osaka þann 29. maí undir yfirskriftinni Friður og jafnrétti. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá þar sem tónlist og íslensk menning voru í forgrunni. Heiðursgestur dagsins var engin önnur en forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir.

Tónlistin var í brennidepli á þjóðardeginum en JFDR, Ásgeir og Gabríel Ólafs komu þar fram ásamt því að tónverk eftir Sindra Má Sigfússon (Sin Fang) og Kjartan Hólm lék lykilhlutverk í myndverkinu Circle of Trust, sem var samstarfsverkefni nokkurra af helstu hönnnunarskrifstofa norðurlandanna og var sýnt í samnorrænum skála heimssýningarinnar.

Dagskráin í Osaka náði einnig til annarra greina, þar á meðal bókmennta og hönnunar: Rán Flygenring kynnti japönsku útgáfuna af bókinni Vigdís, bókin um fyrsta konuforsetann, og Flétta og Ýrúrarí buðu gestum að kynnast einstöku verkefni þar sem ullarafgöngum er umbreytt í pizzur.

Strax í kjölfar þjóðardagsins fór menningarhátíðin Taste of Iceland fram í Tokyo dagana 30.–31. maí. Dagskráin var skipulögð í samstarfi við helstu miðstöðvar lista og skapandi greina og spannaði bókmenntir, hönnun, myndlist og auðvitað tónlist með þátttöku íslenskra listamanna. 

Þann 30. maí steig íslenska listafólkið JFDR og Ásgeir á svið í Space Odd í Shibuya. Þar hélt DJ Hermigervill einnig uppi fjörinu á milli tónlistaratriðanna enda var staðurinn troðfullur af áhugasömum tónleikagestum sem tóku íslenskri tónlist opnum örmum.

Sjáðu myndirnar:

Allar myndir eftir Timothée Lambrecq

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ásamt eiginmanni sínum Birni Skúlasyni
Forseti Íslands ávarpar gesti heimssýningarinnar í tilefni þjóðardags Íslands.
JFDR á sviði á heimssýningunni
Ásgeir á sviði á heimssýningunni
Gabríel Ólafsson leikur fyrir gesti heimssýningarinnar
Leifur Björnsson, sérfræðingur hjá Tónlistarmiðstöð, kynnir Record in Iceland verkefnið fyrir japönskum tónlistariðnaði.
Hermigervill leikur fyrir dansi á Taste of Iceland tónleikum í Tokyo
JDFR á sviði í Tokyo
Heillaður áhorfendaskarinn í Space Odd í Shibuya
Ásgeir á sviði í Space Odd í Shibuya
JFDR stillir sér upp á mynd
DJ Hermigervill heldur uppi stuðinu
JFDR á sviði með Josh Wilkinson
Angurvær Ásgeir á sviði í Tokyo

Lestu einnig

Allar fréttir
Tákn Tónlistarmiðstöðvar