Uppskeruhátíð Hitakassans haldin í Iðnó - Úrslitahópur Músíktilrauna í sviðsljósinu
.jpg)
Síðastliðinn þriðjudag fór uppskeruhátíð Hitakassans fram í Iðnó. Þar komu fram hljómsveitirnar Geðbrigði, Asbezt, j. bear and the cubs, Rown, Spiritual Reflections og Splitting Tongues, en allar eiga þær það sameiginlegt að hafa komist í úrslit Músíktilrauna í ár.
Hitakassinn er námskeið sem Tónlistarborgin Reykjavík stendur fyrir í samstarfi við Hitt Húsið og Tónlistarmiðstöð. Fulltrúum úrslitahóps Músíktilrauna er boðið að taka þátt og hefur Hitakassinn það markmið að valdefla þetta unga tónlistarfólk. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, pallborðsumræðum og hagnýtum verkefnum sem auka þekkingu þátttakenda á íslenskum tónlistariðnaði.
Fríður hópur fagfólks heimsótti Hitakassann í ár og fjallaði um fjölbreytt málefni tengd tónlistargeiranum.
Fulltrúar Tónlistarmiðstöðvar, þau María Rut, Leifur og Anna Rut, kynntu starfsemi miðstöðvarinnar og Tónlistarsjóðs.
Upptökustjórinn og tónlistarmaðurinn Valgeir Skorri Vernharðsson fjallaði um tæknileg atriði sem snúa að upptökum og lifandi flutningi. Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir ræddi um umboðsmennsku, og Arnar Eggert Thoroddsen tók fyrir íslenska fjölmiðlaumhverfið.
Árni Þór Árnason, stjórnarformaður MMF Iceland, Lama-Sea Dear frá Marvöðu, og Colm O’Herlihy, stofnandi INNI, ræddu um fjölbreytt verkefni og starfshætti innan tónlistarbransans. Að lokum spjölluðu Anna Jóna Dungal, Una Torfa, Nanna Bryndís (OMAM) og Alexander Ágústsson (Vintage Caravan) um markaðssetningu og skipulag.
Ljósmyndarinn Brynjar Gunnarsson kíkti svo í heimsókn á síðasta degi námskeiðisins og á uppskeruhátíðina, og hér að neðan gefur að líta nokkrar myndir frá viðburðunum.
Myndir





















